Hæ krakkar. Ég er bara í Noregi.
Vélinni til Oslo seinkaði sökum þess að það var einhver smábilun
í henni. Það tók enga stund að laga bilunina en við þurftum að bíða
og bíða eftir því að það væri staðfest frá flugvellinum að íslenski
gaurinn sem gerði við flugvélina væri ásættanlegur(bara
formsatriði, ef ské kynni að hann væri terroristi) en þannig var
mál með vexti að það var svo mikið álag á faxtækinu þannig að við
þurftum að bíða á meðan ein staðfesting var að faxast fram og til
baka. Þetta tók meira en klukkutíma.
Sem betur fer var það einmitt áhöfnin úr okkar flugi sem var í
fluginu til Trondheim þannig að við sem vorum að fara til Trondheim
voru þau einu sem gátu haldið áfram. Allir aðrir sem ætluðu að
halda áfram frá Oslo með flugi misstu af seinustu vél frá Oslo og
þurftu að gista á hóteli. Farangurinn okkar Harðar Marar kom mjög
seint úr vélinni þannig að við vorum kölluð upp og það var mjög
fyndið þegar konan í kallkerfinu var að ströglast við að segja
"Tómasdóttir" og sérstaklega "Hörður Mar".
Alla vegana.. sökum þess hversu seint við tékkuðum okkur í
flugið Oslo - Trondheim náðist ekki að taka farangurinn okkar með,
þannig að hann var sendur morguninn eftir heim til Harðar Marar.
Þannig að allir sem ætla að heimsækja mig verða að passa að merkja
töskurnar vel með adressuna á áfangastaðnum. Við komum til
Trondheim eitthvað um 1ef ég man rétt og Pål (pabbinn) kom að sækja
mig og ég fór bara beint að sofa.
Morguninn eftir hitti ég svo Kirsti (mamman) og Brage, sem ég á
að passa. Hann er algjört krútt, alltaf brosandi. En ég passaði
hann í ca. hálftíma-klukkutíma. Svo spjallaði ég heilmikið við
Kirsti. Svo komu Pål og Ola heim. Ola er algjört æði líka. Hann er
2,5 árs og var mikið að spjalla við mig og sýndi mér alla bílana
sína og svona.
Næsta dag passaði ég Brage í u.þ.b. 3 tíma á meðan Kirsti skrapp
í vinnuna. Það gekk bara vel hjá okkur fyrst og hann var kátur en
svo fór að að grenja og grét og grét í örugglega meira en
klukkutíma. Ég náði alltaf að hugga hann í nokkrar mínútur inn á
milli en svo byrjaði allt aftur. Ég var alveg ráðþrota. Svo datt
mér það snjallræði í hug að kveikja á sjónvarpinu og hann var
sáttur þangað til mamma hans kom.
Í gær var svo í fyrsta skipti sem að ég var að vinna fullan
vinnudag eins og þetta verður. Byrjaði rúmelega 9 á að fara út í
göngutúr með hann og fór í búðina að versla í matinn þar sem að ég
átti að elda. Svo komum við heim og þá lá hann bara á gólfinu eða í
stólnum og ég bara las á meðan. Ruggaði honum með fætinum á meðan
hann var í stólnum. Ég ákvað að elda fyrir okkur pastarétt sem þeim
fannst mjög góður og eftir matinn kom Ola til mín og sagði "Tinna,
skal vi leke med masser av biler?" [Tinna, eigum við að leika okkur
með fullt af bílum] og það gerðum við. Svo fór ég með strætó til
Harðar Marar og við fengum okkur eggjaköku og kakó.
Í dag fór ég í H&M og ég gat nú alveg verslað smá. Nú
erum við að fara til Gunnsteins. Þetta fólk sem ég er hjá er alveg
frábært og herbergið mitt er það líka.
Kossar og heitar kveðjur,
Tinna(borið fram Tínn(blanda af O og A))